6. flokkur kvenna ÍR

Velkomin(n) á síðuna okkar

13.10.2010 23:59:46 / irstelpur

ÞESSARI BLOGGSÍÐUR HEFUR VERIÐ LOKAÐ...

Kæru foreldrar/forráðamenn..

Þessari bloggsíðu hefur verið lokað til að samræma bloggsíður kvennaflokka hjá ÍR.

Það eru samt ekki miklar breytingar á bloggsíðunni því eftir irstelpur kemur einungis tölustafurinn 6. Það er gert til hagræðingar fyrir iðkendur, foreldra og starfsmenn ÍR.
Nú eru allar bloggsíður stelpuflokkanna eins. Það eina sem þarf að breyta er tölustafurinn í endanum á irstelpur í framtíðinni. Hér fyrir neðan er hægt að tengjast bloggsíðum flokkanna.

www.irstelpur7.blogcentral.is
www.irstelpur6.blogcentral.is
www.irstelpur5.blogcentral.is
www.irstelpur4.blogcentral.is
www.irstelpur3.blogcentral.is


Með kveðju
Halldór Þ. Halldórsson yfirþjálfari.

» 16 hafa sagt sína skoðun

15.09.2010 12:40:48 / irstelpur

Uppskeruhátíð knattspyrnudeildar 2010

Hin árlega uppskeruhátíð knattspyrnudeildar Íþróttafélags Reykjavíkur verður haldin laugardaginn 18. september n.k. í ÍR-heimilinu. Hátíðin hefst kl 11:30 og þangað eru iðkendur, foreldrar/forráðamenn og aðrir fjölskyldumeðlimir velkomnir. Þar verða veittar viðurkenningar fyrir ástundun í yngstu flokkunum, auk þess sem leikmenn ársins og þeir sem hafa tekið mestum framförum eru verðlaunaðir í eldri flokkunum þ.e. 3. 4. og 5. flokki karla og kvenna. Nýjir þjálfarar verða kynntir sem og þeir þjálfarar kvaddir sem láta af störfum.

Barna og unglingaráð mun sjá um grill og annað í lok hátíðar og á meðan er öllum velkomið að leika sér í knattþrautum á gerfigrasinu líkt og síðustu ár. Kl 14:00 mun meistaraflokkur ÍR spila sinn síðasta leik í sumar á móti Þrótti Reykjavík á Valbjarnarvellinum í Laugardal. Þangað viljum við hvetja alla ÍR-inga til að fara og styðja við bakið á strákunum.

Með knattspyrnukveðjum.

Stjórn Barna og unglingaráð knd. ÍR.


» 19 hafa sagt sína skoðun

13.09.2010 21:13:21 / irstelpur

Æfing og keila

Fimmtudaginn 16.sept. er síðasta æfingin á þessu tímabili að því tilefni ætlum við að fara í keiluhöllina strax eftir æfingu.

Mæting í keiluhöllina Öskjuhlíð er kl. 17:50 alls ekki seinna en það því við byrjum að spila kl. 18:00

Keiluferðin kostar 1000kr. á mann og innifalið er pizza og gos.
Við þurfum að greiða fyrir keilubrautirnar á miðvikudaginn, því er mikilvægt fyrir okkur að vita hverjar ætla að mæta og hverjar ekki.

Bankareikningurinn okkar er:

0115-26-67069    kt. 670301-3030

Vinsamlegast setjið nafn stelpunnar í tilvísun eða skýringu.


Þær sem eiga í sjóð geta greitt úr honum en þá þarf að láta Einar gjaldkera vita ekki seinna en á miðvikudag. email. einar@igf.is

Áætlaður tími er kl. 18:00-20:00

Hlökkum til að sjá ykkur :)

Kv. Foreldraráðið




» 31 hafa sagt sína skoðun

18.08.2010 17:45:34 / irstelpur

Úrslitakeppni Íslandsmóts 2010..

Verður haldin á Smárahvammsvelli næstkomandi laugar og sunnudag. A og B.lið mun spila í þessari úrslitakeppni og liðin verða þau sömu og í undankeppninni. Ef það eru einhverjar spurningar þá getur fólk hringt í 891-6320 hjá Dóra þjálfara. Liðin verða tilkynnt á morgun á æfingunni og þar munu stelpurnar fá miða með heim þar sem leikjaplanið kemur fram. Ég mun einnig setja það hér fyrir neðan. Ef stúlkan þín kemst ekki í leikina þá óska ég eftir að fá að vita um það sem fyrst með sms eða vefpósti á irknattspyrna@hotmail.com 


#LeikdagurklLeikurVöllur   
1 lau. 21. ágú. 10 10:40 Haukar - ÍR Smárahvammsvöllur      
2 lau. 21. ágú. 10 10:40 KR - Selfoss Smárahvammsvöllur      
3 lau. 21. ágú. 10 12:00 KR - Haukar Smárahvammsvöllur      
4 lau. 21. ágú. 10 12:00 Selfoss - ÍR Smárahvammsvöllur      
5 sun. 22. ágú. 10 10:40 Haukar - Selfoss Smárahvammsvöllur      
6 sun. 22. ágú. 10 10:40 ÍR - KR Smárahvammsvöllur      

» 31 hafa sagt sína skoðun

21.07.2010 23:20:36 / irstelpur

Æfingar


Tanja er farin í sumarfrí, Dóri yfirþjálfari reddaði þjálfara til að leysa hana af á meðan en það varð einhver misskilningur og því mætti enginn þjálfari í dag en þær fengu að vera með 5.flokk í dag, svo þetta reddaðist allt.

Þessi mál verða komin í lag fyrir æfinguna á morgun fimmtudag :)

ATH.
29. Júlí er ekki æfing vegna verslunarmannahelgarinnar.

21. og 22. Ágúst verða Úrslit í Íslandsmótinu, það er ekki ennþá komið út hvar og hvenar leikirnir eru spilaðir.


kv. Berglind


» 20 hafa sagt sína skoðun

30.06.2010 01:26:48 / irstelpur

Frábæru Landsbankamóti lokið..

Kæru iðkendur og foreldrar stúlkna í 7 – 6.flokki kvenna

Eins og flestir í flokknum vita þá fór Landsbankamót Tindastóls fram um síðustu helgi á Sauðárkróki og það var klárt að ÍR var mætt á svæðið og það með stæl. Það að sjá að ÍR-fáninn væri dregin að húni upp á fjallshæðinni gaf mér góð fyrirheit. Ég fylltist gríðarlegu stolti þegar ég sá þetta og það minnkaði svo sannarlega ekki eftir að ég sá að við eigum margar efnilegar knattspyrnustúlkur í 7 - 6.flokki kvenna. Framtíðin er klárlega björt og við þurfum engu að kvíða ef þessar stelpur skila sér upp í gegnum barna og unglingastarfið á komandi árum. Helgin var að mínu mati frábær og vill ég fyrirhönd barna og unglingaráðs þakka ykkur öllum fyrir frábæra skemmtun og færa sérstakar þakkir til þeirra sem unnu hörðum höndum til að gera þessa ferð mögulega. Vonandi mun þetta mót efla foreldrastarfið og sameina iðkendur, því það er forsenda góðs árangurs og ef til vill stærsti árangurinn í yngriflokkastarfi. Ég tók nokkuð af myndum yfir helgina og vonandi munu þær rifja upp eitthvað af þessum góðu minningum í framtíðinni. Ég setti þær í myndamöppuna hér til vinstri. Um leið vill ég óska eftir fleirri myndum af mótinu og biðja ykkur um að gefa okkur afrit af þeim. Það er hægt senda mér CD disk eða USB lykil með myndunum og ég mundi taka afrit af þeim og skila disknum eða lyklinum til baka ef þess væri óskað. Þeir sem hafa einhverjar spurningar eða tillögur til að bæta starfið í flokknum eða hjá deildinni geta alltaf sent til mín vefpóst á irknattspyrna@hotmail.com

Hér er hægt að sjá lokastöðu í riðlunum í öllum flokkum:

http://www.tindastoll.is/files/Mot/Lokastada.pdf

Hér er hægt að sjá ýmsar myndir frá mótinu sem teknar voru af mótshöldurum:

http://www.tindastoll.is/index.php?pid=1463

Með knattspyrnukveðjum

Halldór Þ. Halldórsson yfirþjálfari barna og unglinga hjá knd. ÍR.


» 19 hafa sagt sína skoðun

21.06.2010 21:07:18 / irstelpur

Landsbankamótið


Þeir sem eiga eftir að greiða fyrir Landsbankamótið eru beðnir um að gera það sem fyrst.
Gjaldið er 10.000kr,
Einhverjar eiga inneignir v/fjáraflana og gefur Einar ykkur upplýsingar um það. Sendið póst á einar@gamur.is til að fá upplýsingar um inneignir.


Bankareikningurinn okkar er:

0115-26-67069    kt. 670301-3030

Vinsamlegast setjið nafn stelpunnar í tilvísun eða skýringu.

Mæting kl. 20:00 í Árskóla á föstudaginn

Sjáumst hress á Sauðárkróki :)





» 17 hafa sagt sína skoðun

19.06.2010 19:12:19 / irstelpur

Foreldrafundur vegna króksmótsins.

Sæl öll,

foreldrafundur vegna króksmótsins verður haldinn eftir æfingu á mánudaginn næsta 21. júní kl. 17:30.

» 15 hafa sagt sína skoðun

10.06.2010 17:53:24 / irstelpur

Ný æfingatafla


Stelpur til hamingju með frábæran árangur á hnátumótinu, þið stóðuð ykkur allar rosalega vel.:)

Næsta æfing er mánudaginn 14. júní

Ný æfingatafla tekur gildi mánudaginn 14.júní

Mánudaga kl. 16:30 - 17:30 Grasvöllur fyrir aftan N-1
Þriðjudaga kl. 16:30 - 17:30 Gervigras
Miðvikudaga kl. 16:30 - 17:30 Gervigras
Fimmtudaga kl. 16:30 - 17:30 Grasvöllur fyrir aftan N-1

Þeir sem eiga eftir að skila skráningarblöðum varðandi mót sumarsins, skilið þeim sem allra fyrst til Tönju þjálfara.

kv. Berglind






» 18 hafa sagt sína skoðun

04.06.2010 18:32:27 / irstelpur

Veitingasala á þriðjudag og miðvikudag


Sæl öll,

Við ræddum um í gær á foreldrafundinum að það væri sniðugt og skilaði góðri fjáröflun að hafa veitingasölu á mótinu í næstu viku. Þó fyrirvarinn sé stuttur er um að gera að stefna að þessu og fá sem flesta til að taka þátt. Afraksturinn kemur til með að dreifast á stelpur þeirra foreldra sem taka þátt.
Ég ætla að koma upp heimasíðu um helgina þar sem foreldrar geta raðað sér niður á klukkutíma eða lengur í sölunni sem og í undirbúningnum. Með samstilltu átaki sem flestra verður þetta lítið mál og bara stemming fyrir okkur. Það sem gera þarf allra fyrst er að afla aðfanga fyrir söluna og því endilega kannið hvort þið getið fengið "spons" eða keypt ódýrt hráefni. Því ódýrara sem þetta verður því meiri afrakstur fyrir okkur.

Tillögur af því sem við getum boðið upp á er:

 - Heitar samlokur með skinku og osti
 - Kökur; Kleinur, muffins, kanilsnúðar eða eitthvað álíka þægilegt (frábært ef einhver er tilbúin að baka)
 - Drykkir; kaffi, svali eða annað sem er ekki mjög dýrt í innkaupum (eða einhver getur reddað ódýrt),
 - Ávextir,
Ef ykkur dettur eitthvað sniðugt í hug þá er um að gera að hafa það með (sérstaklega ef þið getið reddað einhverju frítt eða mjög ódýru).  Endilega látið mig vita sem fyrst hvort og hvað þið getið fengið af hráefni.

Endilega látið vita hér fyrir neðan eða á netfangið kristrune06@ru.is

mbk.Kristrún

s:864-9999

PS: er búin að búa til síðu til að skrá sig á - linkurinn er:
http://spreadsheets.google.com/ccc?key=0AqYhTF_DekQ2dHZRSW5DdnFKMzV4MUdaNG5vQlBIalE&hl=en&pli=1#gid=0 
hægra megin á síðunni er innskráning - búin að senda ykkur aðgangsorð og leiðbeiningar í pósti. Ef það hefur ekki borist sendið mér póst eða sláið á þráðinn 864-9999 8)





» 20 hafa sagt sína skoðun

31.05.2010 13:47:59 / irstelpur

Foreldrafundur


ATH. NÝR FUNDARTÍMI

Foreldrafundur FIMMTUDAGINN 3. júní kl. 18:30 í ÍR heimilinu.
Fundarefni: Mót sumarsins, fjáraflanir og fleira.

» 18 hafa sagt sína skoðun

25.05.2010 10:06:13 / irstelpur

Fótboltamót VÍS og Þróttar

Helgina 29.-30. maí munum við taka þátt í fótboltamóti VÍS og Þróttar í Laugardalnum. Nánari upplýsingar síðar.
Þátttökugjald 1500kr.á stelpu Endilega látið vita hvort ykkar stelpa muni taka þátt í því móti eða ekki.

Vinsamlegast greiðið þátttökugjald sem allra fyrst inná reikning 0115-26-67069              kt. 670301-3030 Vinsamlegast setjið nafn stelpunnar í tilvísun eða skýringu. 

Þær sem eiga pening inni frá fjáröflunum í fyrra þurfa ekki að leggja út fyrir þessu móti.
Nánari upplýsingar um inneignir eru hjá Einari Gjaldkera s. 8648809 eða einar@gamur.is

Foreldrafundur miðvikudaginn 2. júní kl. 18:00 í ÍR heimilinu.
Fundarefni: Mót sumarsins, fjáraflanir og fleira.

Foreldraráð og mót sumarsins er hægt að sjá með því að smella á link, vinstra megin á síðunni.

kv. Foreldraráð


» 31 hafa sagt sína skoðun

06.05.2010 21:38:14 / irstelpur

Reykjavíkurmót

Reykjavíkurmótið verður í Egilshöllinni 13. og 15.maí (Ekkert þátttökugjald)

Yngra árið (2001) á að spila fimmtudaginn 13.maí. sjá tengil
U9 Rvk.mót

Eldra árið (2000) á að spila laugardaginn 15.maí. sjá tengil
U10 Rvk.mót

Stelpurnar eiga að vera tilbúnar í klefanum 30.mín fyrir fyrsta leik. :)
Endilega látið vita hér fyrir neðan hvort stelpan ykkar mætir eða ekki :lol:


Helgina 29.-30. maí munum við taka þátt í fótboltamóti VÍS og Þróttar í Laugardalnum. Nánari upplýsingar síðar.
Þátttökugjald ca.1500kr. Endilega látið vita hvort ykkar stelpa muni taka þátt í því móti eða ekki.

Þar sem það er orðið mjög stutt í mót sumarsins og ég hef ekki enn fengið nein viðbrögð við því hverjir eru í foreldraráði nema Einar gjaldkeri þá vil ég biðja þá sem hafa áhuga á að taka þátt í foreldrastarfinu að senda mér línu á irstelpur@gmail.com svo það sé hægt að skipuleggja mót sumarsins :)

kv. Berglind









» 32 hafa sagt sína skoðun

30.03.2010 08:32:10 / irstelpur

Páskafrí


Næsta æfing er fimmtudaginn 8.apríl

Gleðilega páska

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.02.2010 10:30:23 / irstelpur

Æfing fellur niður í dag

Æfing fellur niður í dag fimmtudag 25.febrúar v/ veðurs.

p.s Mig vantar netföng og símanr. hjá þeim sem eru í foreldraráði, endilega sendið það á irstelpur@gmail.com svo ég geti sett þessar upplýsingar á heimasíðuna.

kv. Berglind

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Heimsóknir
Í dag:  0  Alls: 66315
Klukkan